Nú er loksins hægt að fá Lífsklukkuna á Íslandi!

Læknisfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að notkun Lífsklukku (eftirlíkingu af sólarupprás) bætir skap, dugnað, framtakssemi og gæði svefns og vöku. Hún dregur einnig mikið úr einkennum skammdegisþyngsla. Lumie lífsklukkur, sem þróaðar eru af fremstu sérfræðingum Evrópu í birtumeðferð, nota eðlilega svörun líkamans við ljósi til að hjálpa fólki að sofa og líða betur.

Hvernig virkar þetta?

Með því að nota eðlilega svörun líkamans við sólarupprás og sólsetri hjálpar Lífsklukkan til við að koma reglu á dægusveifluna (svefn/vöku mynstrið). Á hverjum morgni vekur Lífsklukkan þig hægt og rólega með ljósi, sem kemur líkamsstarfseminni af stað áður en þú áttar þig á því, þannig að þú vaknar hress og jákvæð(ur). Á kvöldin slökknar smám saman á lífsklukkunni sem gefur líkamanum merki um að slaka á og hjálpar þér að sofna.

Notkun lífsklukkunar hjálpar við að koma reglu á melatónín hringrásina með því að halda magninu háu á næturna (gera þig syfjaðan) og lágu á daginn (halda þér vakandi). Svefninn verður brátt reglulegur og endurnýjandi.